< Eldri hugmyndir

Vesturbær - Miðbær - Sæbraut: Skipan gatna og vegganga

 

 

skoða í stærri mynd (300 kb) - skoða í stærstu mynd (560 kb)

Vesturbær - Miðbær - Sæbraut: Skipan gatna og vegganga (janúar 2004)

Megin gegnum-umferð um mjógöng og stokk, hámarkshraði 45 til 60 km: Stokkur undir Geirsgötu, - mjógöng fyrir minni og miðlungs stóra bíla milli Eiðisgranda og Geirsgötu, og á hinn bóginn undir Arnarhól og Stjórnarráðsreit að Sæbraut. - Götur að öðru leyti með 30 km hámarkshraða, opnar allri umferð, innan hverfa jafnt sem gegnum þau.

 

Eldri hugmyndir, sem hin samfellda hugmynd að skipulagi byggir á, gerðu ráð fyrir að öll umferð færi í djúpan stokk um Geirsgötu - í stað grynnri stokks einungis ætluðum fólksbílum og öðrum minni ökutækjum. Þá var ekki gert ráð fyrir hafnkví og viðlegukanti fyrir skemmtiferðaskip og því miðað við heldur umfangsminni landfyllingu í krikanum milli Ingólfsgarðs og Sæbrautar. Að öðru leyti eru þessar eldri hugmyndir í aðalatriðum nokkuð áþekkar hinum nýrri.

______________________________

Eldri hugmynd: Vesturbær - Miðbær

Eldri hugmynd: Miðbær - Sæbraut

Eldri hugmynd: Heildarskipan gatna

© febrúar 2004

Árni B. Helgason ("Valka"/"Salka")

 

prenta skjal

Rómanza: heim á kvist